Panelklæðningar eru mikið notaðar á veggi og í loft. Efnis- og litaval er mikið en helst er notað Ál, Aluzink, Galv. og Zink.
Álplötur eru klipptar og beygðar á báðar langhliðar í panela.
Hæð panelsins ákvarðast af módúl hússins.
Úthorn eru beygð í svokallaðan hattprófíl og gluggastykki einnig.
Panellinn hnoðast á álundirkerfi, festingar eru oftast sýnilegar og hnoð eru með hettum í sama lit og klæðningin. Einnig er hægt að hafa faldar festingar.
Hafðu samband og við veitum ráðgjöf um panelklæðningar.