Við hjá Blikksmiðjunni Vík sérhæfum okkur í þakklæðningum fyrir allar gerðir bygginga, hvort sem um er að ræða einföld þök eða flóknari lausnir með kvistum. Með öflugan tækjakost og reynslumikinn mannskap tryggjum við vandaða vinnu og nákvæmni í hverju verkefni. Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval efna, þar á meðal ál, zink og eir, sem henta vel fyrir íslenskar aðstæður.
Efnisval er auðvitað mikilvægt og viljum við gjarnan leiðbeina þér með að velja það sem hentar best að nota hverju sinni .
SJÁ NÁNAR