Erum með fjöllokk sem býður upp á öll möguleg munstur í gataplötur.
Author: Blikksmiðjan Vík
Reykrör – Arinstæði
Smíðum reykrör frá Kamínum, Arinum og Gasarinum. Smíði og uppsetning, og allur frágangur hvort sem um er að ræða sumarbústað eða íbúðarhús.
Þakkantar
Þakkantar fylgja hverju húsi og varla hægt að telja upp afbrygði af þeim sem við höfum ekki smíðað.
Flísaklæðningar
Blikksmiðjan Vík smíðar mikið af ýmsum flísaklæðningum í kringum glugga, horn, skillista, sökkullista ofl.
Panelklæðningar
Panelklæðningar eru mikið notaðar á veggi og í loft. Efnis og litaval er mikið en helst er notað Ál, Aluzink, Galv. Og Zink. Álplötur eru klipptar og beygðar á báðar langhliðar í panela. Hæð panelsins ákvarðast af módul hússins. Úthorn eru beygð í svokallaðan hattprófíl og gluggastykki einnig. Panellinn hnoðast á álundirkerfi, festingar eru oftast […]
Pönnuklæðningar
Pönnuklæning er vinsæl veggjaklæðning og gefur voldugt útlit á flest hús og er t.d. auðvelt að hafa án sýnilegra festinga eins og nokkur dæmi hér gefa til kynna. Kasettuklæðningar Álplötur eru beygðar á allar fjórar hliðar, kasettuklæðning er með sérstöku festikerfi þannig að engar festingar sjást. Úthorn og innhorn eru beygð ásamt því að beygt […]
Báruklæðningar
Báruklæningar eru búnar að sanna sig í áratugi á íslandi, og flestir þekkja mjög vel. Efnis og litaval hefur hinsvegar stór aukist, og er mikið notað Ál, Aluzink, Galv. Báruál er mjög vinsælt bæði í þak- og veggklæðningar. Algengt er að klæða veggi með báruáli að stærstum hluta en hafa annars konar klæðningu með, t.d. […]
Sléttplötuklæðningar
Sléttplötuklæðning er yfirleitt auðveld í vinnslu og reynist alltaf vel. Vinsælt efnisval er 2mm ál sem er fáanlegt í fjölmörgum litum. Þeir sem velja sléttplötuklæðningu hafa um þrjár útfærslur að velja: Sléttar plötur klipptar eftir málum. Sléttplötuklæðningu með vatnsbroti og einfaldri yfirfellingu. Sléttplötuklæðningu með vatnsbroti og tvöfaldri yfirfellingu. Í öllum útfærslum eru innhorn og úthorn […]
Klæðningar
Utanhússklæðningar er okkar sérgrein.Vík hefur tekið þátt í að hanna og þróa utanhússklæðningar sem standast íslenska veðráttu í samráði við verkfræðinga og efnissala í áraraðir. Við höfum upp á að bjóða margar tegundir af utanhússklæðningum og veitum ráðgjöf um val á þeim. Sendu okkur fyrirspurn eða pantaðu utanhúsklæðningu hér.
Þaktúður
Sérsmíðum þaktúður og eigum ýmsar gerðir af þeim á lager.
Niðurföll á svalir
Eigum við á lager í nokkrum útfærslum, innsteipt eða utanáliggjandi ásamt ýmsum útfærslum af niðurföllum á flöt þök. Innsteipt niðurföll eru smíðuð úr gæða efnum sem standast tímans tönn. Kopar og riðfrítt 316 stál.
Gluggastykki
Gluggar eru af öllum stærðum og gerðum, það eru gluggastykkin líka. Við smíðum og klæðum allar gerðir og stærðir af gluggastykkjum.