Sléttplötuklæðning er yfirleitt auðveld í vinnslu og reynist alltaf vel. Vinsælt efnisval er 2mm ál sem er fáanlegt í fjölmörgum litum.
Þeir sem velja sléttplötuklæðningu hafa um þrjár útfærslur að velja:
- Sléttar plötur klipptar eftir málum.
- Sléttplötuklæðningu með vatnsbroti og einfaldri yfirfellingu.
- Sléttplötuklæðningu með vatnsbroti og tvöfaldri yfirfellingu.
Í öllum útfærslum eru innhorn og úthorn beygð sem og gluggastykki og vatnsbretti. Undirkerfið er úr áli en plöturnar eru hnoðaðar á leiðarakerfið og festingarnar eru því sýnilegar.